laugardagur, 29. nóvember 2014

~ Starry Snowflake Square ~





Þennann ferning, Starry Snowflake, fann ég á netinu en skildi svo ekkert í uppskriftinni og endaði með því að búa hann til eftir myndinni.   Ætla að reyna að skrifa upp mynstrið svo ég geti etv gert hann aftur síðar en spurning hvort einhver annar skilji það mynstur....


Jebb er alveg dottin í ferningana.... Er búin að uppgötva undraheim "öðruvísi ömmuferninga" á veraldarvefnum.... hef lengi gælt við hugmyndina um að gera skrautlegt teppi sem væri samsett úr mismunandi ferningum og þó ég hafi verið að gera nokkra af hverri tegund núna  þá er ég kannski komin af stað með eitthvað sem verður laaaaangtímaverkefni... og endar kannski með tíð og tíma sem litríkt teppi...

Þá er bara spurningin hvort ég ætla að hafa einhvert þema í ferningunum eða ekki? Ætla ég að hafa þá allskonar eða á ég að hafa hvítan bakgrunnslit í litagleðinni??  Er farin að hallast að því að þetta verði kannski með einhvers konar blómaþema á hvítum bakgrunni en allskonar ofurskrautlega teppið bíði enn um sinn ....eða verður þetta ofurskrautlegt með hvítum kannti?!  Ætli það skýrist ekki bara sjálfkrafa eftir því hvaða ferningar verða fyrir valinu.



My Starry Snowflake Square: Uppskrift:

Kambgarn, ýmsir litir
heklunál nr.4

LL = loftlykkja
KL =keðjulykkja
FL = fastalykkja
ST = stuðull
TBST = tvíbrugðinn stuðull/tvöfaldur stuðull
OST = opinn stuðull


Hvít stjarna:
1.umf. Byrjaði á að gera galdralykkju (magic loop) og gerði 5 fastapinna inní hana og lokaði hringnum með keðjulykkju
2. umf. Hekla 5LL *stuðull + 2 loftlykkjur* endurtekið x5, lokað með keðjulykkju í 3ju loftlykkju = 6 stuðlar
3.umf. Hekla KL inn í fyrsta bogann, 2LL, 4OST, lokað með því að draga bandið í gegnum allar 5 lykkjur á nál, og 5LL. 5OST í næstu 5 boga og 5LL á milli. Loka með keðjulykkju í toppnn á fyrstu stjörnu.

Bak:
1.umf. Byrjaði á að gera galdralykkju, 12 stuðlar í hringinn. Loka með keðjulykkju.
2.umf. 24 TBST (3LL og 23TBST)
3.umf. stjarnan lögð framan við bakstykkið með rönguna að réttunni á bakstykkinu. Heklað saman með 6 FLí hvert bil (fór einu sinni í lykkjurnar næst oddi stjörnunnar en gerði 2x2 FL +i lykkjurnar þar á milli.
4.umf. Heklaði 13 stuðlar pr. langhlið (eða öllu heldur 9ST og 2TBST til hvors enda) og 2LL á hornum)
5.umf. 17ST og 2LL á hornum.
6.umf. (hvít) 21ST og 2LL á hornum.
....hvíta garnið mitt var reyndar búið svo það vantar síðasta hringinn á alla nema einn á myndinni




Engin ummæli:

Skrifa ummæli